Deildarval

Nýjustu fréttir

  • Spennandi tónleikar framundan á AIM 2010

     

    AIM 2010 kynnir með stolti einstaka tónleika sem verða í Ketilhúsinu laugardaginn 5. júní. Þar verða Benni Hemm Hemm, Alasdair Roberts og Blásarasveit Reykjavíkur undir stjórn Tryggva M. Baldvinssonar með glænýtt tón- og textaverk eftir Benedikt H. Hermannsson sem frumflutt verður á Listahátíð í Reykjavík í Íslensku Óperunni 3ja júní. Í verkinu er íslensku og skosku att saman, svo úr verður tungumál sem hljómar kunnuglega en er þó framandi. Söngvararnir tveir, Benni Hemm Hemm og hinn skoski Alasdair Roberts, syngja persónulega og nærgöngula texta hvor á sínu tungumálinu - stundum má þeir hvor annan út en annars staðar hjálpast þeir að og lyfta hvor öðrum upp. Blásarasveit Reykjavíkur heldur söngvunum uppi og flæðir inn í textaeyður og stundum tekur hún völdin og sprengir þakið af húsinu.

    Tónleikarnir á Akureyri eru samstarfsverkefni AIM Festival og Listahátíðar í Reykjavík með sérstökum fjárstuðningi hennar og þeir eru einnig styrktir sérstaklega af Menningarsjóði Eyþings.

    Miðar á kr. 2.900 í Eymundsson og við innganginn.


  • Valsađ verđur í háloftunum í dag

    Arngrímur. Mynd: Hörđur Geirsson

    Fresta þurfti opnunaratriði AIM festival í síðustu viku en nú viðrar vel fyrir flugvals þeirra Arngríms Jóhannssonar og Jóns Hlöðvers Áskelssonar. Arngrímur mun fljúga yfir pollinum við valsinn hans Jóns Hlöðvers sem var saminn sérstaklega fyrir þetta tilefni.
    Svæðisútvarp Norðurlands mun útvarpa valsinum í útsendingartíma sínum kl 17.30 - 18.00 fm 96,5
    Fólk mun safnast saman við Höepfnersbryggju kl 17.30.

    Í dag eru lokatónleikar AIM Festival, Mótettukór Hallgrímskirkju flytur nýtt tónverk eftir Jón Hlöðver Áskelsson undir stjórn Harðar Áskelssonar. Tónleikarnir eru í boði AIM Festival og Menningarráðs Eyþings.

    Á AIM festival 2009 komu fram 150 tónlistarmenn á 9 tónleikum og áheyrendur 2500 manns.

    Hægt er að sjá myndir af hátíðini á myndasíðuni okkar.

    Sjáumst að ári og takk fyrir okkur.


  • AIM festival býđur til tónlistarveislu til heiđurs Dalai Lama


    AIM Festival býður öllum að koma frítt í tónlistarveislu til heiðurs Dalai Lama.
    Mótettukór Hallgrímskirkju undir stjórn Harðar Áskelssonar flytur nýtt verk eftir Jón Hlöðver Áskelsson á morgun fimmtudag í Akureyrarkirkju kl 20.30

    AIM festival gekk framar öllum vonum, mjög góð aðsókn þetta árið og dásamlegir tónleikar alla helgina. Nú endum við AIM festival 2009 með bravör og bjóðum öllum að koma frítt í þessa mikla tónlistarveislu Mótettukórsins og Jóns Hlöðvers. Lesa meira

  • Spilađ fyrir fullu húsi alla helgina

    Stórsveit Reykjavíkur. Mynd: Hugi Hlynsson

    AIM festival hófst um helgina, spilað var fyrir fullu húsi alla helgina.
    Buxnaskjónar vinningshafar hljómsveitarkeppni AIM Festival riðu á vaðið á föstudagskvöldinu á Græna hattinum með sínum fersku og pönkuðu tónum. Retro Stefson tóku við, gjörsamlega dásamleg og spilagleðin smitaðist til allra viðstaddra.
    Að lokum stigu Hjálmar á stokk með sínum ljúfa hrynjanda, spiluðu vel og lengi og salurinn dillaði sér í takt.

    Stórsveit Akureyrar komu sáu og sigruðu laugardagskvöldið einnig á Græna hattinum, fullur salurinn beið eftir að sveitin kæmi sér fyrir á litlu sviðinu, ótrúlegt að það var pláss fyrir þá alla 20. Þeir tóku ýmis lög eftir valinkunna meistara og fóru létt með það. Mikil stemmning og gleði ríkti meðal sveitarinnar og áhorfendur virtustu hissa á leikni þeirra.
    Alberto Carmona, stjórnandi sveitarinnar segir að þetta sé einungis byrjunin á Stórsveit Akureyrar.

    Krasstúr Reykjavík! og Sudden Weather Change var í Populus Tremula á sunnudagskvöldið, troðið af fólki og mikið stuð.
    Sviðsframkoma Bóas söngvara Reykjavík! er engu lík og orðin vel þekkt, dansandi uppá borðum með elegans.

    Fyrr um daginn spilaði Stórsveit Reykjavíkur í Ketilhúsinu og með þeim í för saxafónsnillingurinn Bob Mintzer sem einnig stjórnaði sveitinni. Þess má geta að á meðal verkanna sem Stórsveitin flutti var þjóðsöngur Íslands, en slíkur gjörningur mun varða við íslensk lög, glæsileg sveit og grand tónleikur.

     Ekki er allt búið enn því Megas og Senuþjófarnir munu spila á Græna Hattinum á miðvikudag og endapunktur AIM Festival þetta árið er frumflutningur Mótettukórs Hallgrímskirkju á kórverki eftir Jón Hlöðver Áskelsson næstkomandi fimmtudag í Akureyrarkirkju.


Get the Flash Player to see this player.

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning